Tónlist

Mumford tekur upp með Timberlake

Justin Timberlake naut samstarfsins við Marcus Mumford.
Justin Timberlake naut samstarfsins við Marcus Mumford.
Marcus Mumford, höfuðpaur Mumford and Sons, og Justin Timberlake hafa verið að taka upp tónlist saman fyrir nýjustu kvikmynd Coen-bræðra. Myndin, sem heitir Inside Llewyn Davis, skartar Carey Mulligan, eiginkonu Mumfords, í einu aðalhlutverkanna og fjallar um tónlistarmann sem reynir að öðlast frægð og frama í New York á sjöunda áratugnum.



Í viðtali við MTV sagðist Timberlake hafa notið samstarfsins. „Þetta verður ekki bara góð mynd heldur verður tónlistin í henni frábær,“ sagði söngvarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.