Tónlist

Miley Cyrus allsnakin í nýju myndbandi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Söngkonan Miley Cyrus heldur áfram að vekja athygli fyrir uppátæki sín og í dag birti hún nýtt tónlistarmyndband á Youtube. Myndbandið er við lagið Wrecking Ball sem finna má á plötunni Bangerz sem kemur út í byrjun næsta mánuði.

Cyrus virðist sífellt ófeimnari við að sýna sig, samanber atriði hennar á VMA-hátíðinni í síðasta mánuði, og gengur hún skrefinu lengra í nýja myndbandinu og fer úr hverri spjör. Nú þegar hefur myndbandið verið spilað 2,5 milljón sinnum en líklegt er að sú tala muni hækka hratt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.