Lífið

Gwyneth Paltrow og Chris Martin skilin

Ritstjórn Lífsins skrifar
Einhleyp á ný
Einhleyp á ný Vísir/Getty
Leikkonan Gwyneth Paltrow og söngvarinn Chris Martin eru skilin eftir tíu ára hjónaband. 



Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim á heimasíðu leikkonunnar Goop undir yfirskriftinni Meðvituð sambandsslit.  



"Það er með mikilli sorg í hjarta sem við höfum ákveðið að skilja. Við höfum verið að vinna í hjónabandinu í rúmlega ár, stundum saman og stundum í sitthvoru lagi, til að komast að því hvað mætti betur fara í sambandinu. Því miður komust við að þeirri niðurstöðu að það væri betra fyrir okkur að vera ekki saman, þrátt fyrir að við elskum hvort annað heitt."

Stjörnuparið ítrekaði að þau myndu halda áfram að vera fjölskylda. Parið á saman börnin Apple og Moses

"Fyrst og fremst erum við foreldrar tveggja yndislegra barna og við biðjum um frið á þessum erfiðu tímum fyrir þau og okkur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.