Ísland 67 - ESB 14 Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. mars 2014 07:00 Víða í Evrópu er vindorka beisluð til að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa. Fréttablaðið/AP
Hlutur endurnýjanlegra orkugjafa í endanlegri orkunotkun aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) var að meðaltali 14,1 prósent árið 2012. Þetta kemur fram hjá Samorku sem vísar í nýbirtar tölur evrópsku hagstofunnar Eurostat. Aukning frá árinu 2004 er sögð nema 8,3 prósentum. „Flest aðildarríkin hafa náð ágætum árangri í að auka þetta hlutfall í samræmi við áætlun ESB fyrir hvert ríki, en sem kunnugt er stefnir ESB á að meðaltalið verði 20 prósent árið 2020,“ segir á vef Samorku og bent á að um þessar mundir sé rætt um nýtt markmið fyrir árið 2030. „Og hefur framkvæmdastjórnin lagt til að stefnt verði á 27 prósent.“ Hæsta hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun innan ESB er í Svíþjóð eða 51 prósent, en næst kemur Lettland með 36 prósent, Finnland með 34 prósent og Austurríki með 32 prósent. Lægst er hlutfallið á Möltu, 1,4 prósent, en þar fyrir ofan eru Lúxemborg með 3,1 prósent og Bretland með 4,2 prósent. Til samanburðar er bent á að hér á landi sé hlutfallið 67 prósent og í Noregi 64,4 prósent. „Á Íslandi eru 99,9 prósent allrar raforku framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum sem og um 99 prósent allrar orku til húshitunar, en við flytjum inn jarðefnaeldsneyti einkum til notkunar í samgöngum og sjávarútvegi.“ Hér má sjá umfjöllunina á vef Samorku og hér má sjá tölur Eurostat í PDF-skjali.
Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira