Þúsundasti leikur Wengers breyttist í martröð | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. mars 2014 00:01
Arsene Wenger og lærisveinar hans fengu vænan rassskell í 1000. leik Frakkans sem stjóri Arsenal en liðið tapaði, 6-0, fyrir Chelsea í toppslag á Brúnni í dag. Veislan hjá Chelsea hófst strax á fimmtu mínútu þegar Samuel Eto'o skoraði laglegt mark eftir skyndisókn heimamanna. Þjóðverjinn Andre Schürrle lagði upp fyrsta markið og skoraði svo annað markið tveimur mínútum eftir að Kamerúninn hafði komið heimamönnum á blað. Vendipunktur leiksins var svo á 17. mínútu þegar Alex Oxlade-Chamberlain varði skot með hendi sem var á leiðinni framhjá.Andre Marriner, dómara leiksins, tókst þó að reka rangan mann af velli en hann sendi bakvörðinn Kieran Gibbs í sturtu fyrir brotið.Eden Hazard skoraði úr vítinu, 3-0, og Brasilíumaðurinn Oscar bætti við fjórða markinu á 42. mínútu og staðan í hálfleik, 4-0. Manni fleiri voru Chelsea-menn betri aðilinn og þeir Oscar og MohamedSalah bættu við sitthvoru markinu í síðari hálfleik. Niðurlægingin algjör, 6-0. Chelsea er eftir leikinn með 69 stig í toppsæti úrvalsdeildarinnar, sjö stigum á undan Liverpool sem á tvo leiki til góða en Liverpool mætir Cardiff núna klukkan 15.00. Arsenal er einnig sjö stigum á eftir Chelsea en á aðeins einn leik til góða.
Enski boltinn Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Fleiri fréttir Í beinni: Man. City - Liverpool | Stórleikur á Etihad Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Sjá meira