Lífið

Lagðir af stað heim

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin Pollapönk er komin upp í flugvél á leið aftur heim til Íslands ef marka má Facebook-síðu sveitarinnar. Eru Pollarnir væntanlegir til landsins í kvöld.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru Pollapönkarar ennþá í göllunum sem eru þeirra einkennismerki og hafa heillað Evrópubúa síðustu daga.

Pollapönk endaði í 15. sæti í Eurovision í gær með lagið Enga fordóma, eða No Prejudice, en það var hin austurríska Conchita Wurst sem bar sigur úr býtum með lagið Rise like a Phoenix.


Tengdar fréttir

Dagur hitti Johnny Logan

Borgarfulltrúinn Dagur B. Eggertsson er staddur á lokakeppni Eurovision í Kaupmannahöfn. Þar hitti hann sigursælasta keppanda í sögu Eurovision, Johnny Logan.

Evrópa er að átta sig á því að Pollapönk er ekki að grínast

Evrópa er að átta sig á því að Pollapönk er ekki að grínast. Þetta segir Snæbjörn Ragnarsson bakraddasöngvari Pollapönks sem flytur lagið Enga fordóma í Eurovision í Danmörku í kvöld. Íslensk keppnishópurinn kvartaði formlega yfir hljóðmistökum í dómararennsli í gær.

Púað á Rússana

Stigagjöf til Rússlands vekur ekki mikla lukku á Eurovision-hátíðinni.

Benedikt sextándi

Uppröðun á stigakynnum í Eurovision í kvöld hefur verið kynnt.

Svona skiptust stig Íslands

Íslendingar fengu 58 stig í Eurovision í kvöld. Mest fengum við 8 stig frá San Marínó.

,,Kallinn er í fáránlegu stuði''

Hraðfréttamaðurinn Benedikt Valsson sagðist vera í fáránlegu stuði er hann tilkynnti Evrópu að Ísland hefði gefið Hollendingum 12 stig.

Skera sig úr í fjöldanum

Pollapönk hefur hvarvetna vakið athygli í litríkum útpældum fatnaði í aðdraganda Eurovision síðustu daga og skera meðlimir hljómsveitarinnar sig svo sannarlega úr í fjöldanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×