Körfubolti

KR heldur tryggð við Kanann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Valli
Körfuknattleiksdeild KR hefur samið við Terry Leake og mun hann klára tímabilið með liðinu.

Leake kom til liðs við KR eftir 5 umferðir, lék 6 leiki og skoraði rúm 16 stig á 20 mínútum í leik. Leake hefur verið annar eða þriðji varamaður inn af bekknum í þeim leikjum sem hann hefur spilað.

Körfuknattleiksdeild KR velti fyrir sér í jólafríinu hvort semja ætti við Leake til loka tímabilsins. Sú hefur orðið raunin.

„Terry hefur smellpassað inn í liðið og er orðinn mikilvægur hluti af sterkri liðsheild sem getur fleytt KR liðinu langt í vetur,“ segir í tilkynningu frá KR-ingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×