Tónlist

Skálmöld tónlistarflytjandi ársins

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Skálmöld.
Skálmöld. Mynd/Lalli Sig
Fyrri hluti Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013 fór fram í Norðurljósum í Hörpu í dag þegar veitt voru verðlaun í ellefu flokkum. Lista yfir verðlaunahafa má sjá hér fyrir neðan. 

Seinni hluti verðlaunaafhendingarinnar er í kvöld í Eldborg í Hörpu og hefst hann klukkan 20.00. Sá hluti verður í beinni útsendingu á RÚV. Þar koma fram Emilíana Torrini, Hjaltalín, Mezzoforte, Skálmöld, Þóra Einarsdóttir og Elmar Gilbertsson ásamt fleira tónlistarfólki. 

Sigurvegarar fyrri hluta Íslensku tónlistarverðlaunanna:



Tónverk ársins (Djass og blús): Strokkur af plötunni Meatball Evening – Kristján Tryggvi Martinsson

Tónverk ársins (Sígild- og samtímatónlist): Nostalgia -Páll Ragnar Pálsson

Upptökustjóri ársins: Sveinn Helgi Halldórsson fyrir stjórn upptöku á Enter 4 með Hjaltalín

Tónlistarviðburður ársins: Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson – Ragnheiður, ópera

Plötuumslag ársins: Mammút - Komdu til mín svarta systir

Hönnun: Alexandra Baldursdóttir, Katrína Mogensen, Sunneva Ása Weisshappel

Söngvari ársins (Sígild- og samtímatónlist): Ágúst Ólafsson

Söngkona ársins (Sígild- og samtímatónlist): Hallveig Rúnarsdóttir

Tónlistarflytjandi ársins (Djass og blús): Sigurður Flosason

Tónlistarflytjandi ársins (Popp og rokk): Skálmöld

Tónlistarflytjandi ársins (Sígild- og samtímatónlist): Nordic Affect

Tónlistarmyndband ársins: Grísalappalísa - Hver er ég? í leikstjórn Sigurðar Möller Sívertsens






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.