Tónlist

Slóvenar senda þverflautuleikara í Eurovision

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Tinkara Kovač flytur lagið Spet / Round And Round í Eurovision-keppninni í Kaupmannahöfn í maí fyrir hönd Slóveníu.

Tinkara hefur reynt þrisvar áður að komast í Eurovision, árið 1997, 1999 og nú síðast 2001.

Hún hefur gríðarlega reynslu í tónlistarbransanum og er ekki aðeins lunkin söngkona heldur mjög frambærilegur þverflautuleikari eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Tinkara mun flytja lagið í seinni undankeppninni í Kaupmannahöfn þann 8. maí og aftur 10. maí ef hún kemst áfram í aðalkeppnina.

)

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.