Tónlist

Miðar á Timberlake tónleika á 60 þúsund á Bland

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Dýrasti miðinn er á 60 þúsund krónur í stæði.
Dýrasti miðinn er á 60 þúsund krónur í stæði. Vísir/Getty
Eftir að miðar á tónleika Justins Timberlake í kórnum seldust upp á 12 mínútum í morgun hafa margir snúið sér að síðunni Bland.is, hvort sem þeir eru að selja eða óska eftir miðum.

Dýrustu miðarnir sem eru til sölu, samkvæmt óformlegri könnun Vísis, eru 60 þúsund krónur og gilda þeir í stæði. Sambærilegir miðar kostuðu 14900 krónur í morgun, í gegnum miðasölu vefsíðunnar Miði.is.

Margir óska eftir miðum í gegnum síðuna og virðast flestir tilbúnir að borga meira en uppsett verð var í gegnum hefðbundna miðasölu í morgun. Hér að neðan má sjá skjáskot af hluta þeirra auglýsinga sem fólk hefur sett inn á samskiptasíðuna, hvort sem er um miða til sölu að ræða eða ósk eftir miðum.

Tónleikar Justin Timberlake fara fram þann 24. ágúst í Kórnum í Kópavogi.





Mynd/Skjáskot af Bland.is

Tengdar fréttir

Miði.is hrundi vegna álags

Miði.is reynir nú eftir fremsta megni að koma kerfinu í gang aftur, svo miðasala geti haldið áfram.

Uppselt á Justin Timberlake

16.000 miðar voru í boði á tónleikana. "Það er enginn möguleiki á að það verði fleiri miðar í boði, því miður.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.