Arsenal vann Hull örugglega - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2014 12:30
Lukas Podolski skoraði tvö mörk og Aaron Ramsey átti þátt í öllum þremur mörkunum þegar Arsenal vann 3-0 útisigur á Hull í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og náði um leið fjögurra stiga forskoti í baráttunni við Eveton um fjórða og síðasta sætið inn í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Lukas Podolski skoraði tvö mörk í sigrinum á West Ham United í vikunni og endurtók leikinn í dag. Fjögur af átta deildarmörkum Þjóðverjans á leiktíðinni hafa því komið á síðustu fimm dögum. Arsenal setti með þessu pressu á Everton sem á leik inni á móti Manchester United nú strax á eftir en lærisveinar Arsene Wenger hafa heldur betur svarað kallinu eftir að Everton náði fjórða sætinu af þeim á dögunum. Aaron Ramsey er kominn aftur í gang eftir meiðsli og var allt í öllu í liði Arsenal í dag. Ramsey skoraði fyrsta markið á 31. mínútu og lagði síðan upp bæði mörkin fyrir Podolski, fyrst með því að leggja boltann fyrir hann og svo með því að eiga skot sem Podolski fylgdi á eftir. Arsenal og Hull mætast í bikarúrslitaleiknum á Wembley í næsta mánuði og þar þurfa lærisveinar Steve Bruce í Hull að spila miklu betur ætli þeir sér að eiga möguleika í enska bikarinn. Fyrsta mark Arsenal í leiknum í dag kom eftir frábæra og dæmigerða Arsenal-sókn þar sem leikmenn Arsenal spiluðu sig í gegnum vörn Hull sem endaði með því að Ramsey skoraði eftir sendingu frá Santi Cazorla. Lukas Podolski kom Arsenal síðan í 2-0 með laglegu skoti eftir skyndisókn og brjóstsendingu Ramsey í lok fyrri hálfleiksins. Lukas Podolski gulltryggði síðan sigurinn á 54. mínútu þegar hann skoraði sitt annað mark eftir að Steve Harper varði skot Aaron Ramsey. Fleiri urðu mörkin en gátu vissulega orðið fleiri ekki síst þegar Olivier Giroud skaut í slá af örstuttu færi eftir markmannsmistök.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira