Bíó og sjónvarp

Frank og Casper fíflast á setti

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Þeir Frank Hvam og Casper Christensen munu birtast aftur á silfurtjaldinu, en tökur eru hafnar á myndinni Klovn Forever. Leikstjóri myndarinnar er Mikkel Norgaard sem einnig leikstýrði síðustu mynd þeirra félaga.

Frank Hvam birti myndband á Facebook síðu sinni frá tökum myndarinnar Klovn forever. Þó myndbandið sé stutt er það einstaklega fyndið.

Gert er ráð fyrir að myndin komi út í september á næsta ári.

Hér má sjá nokkur vel valin atriði úr þáttunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.