Aron Kristjáns: Björgvin verður góður jóker Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. nóvember 2014 10:00 Róbert Gunnarsson mætti nýrakaður og vel klipptur til leiks gegn Ísrael. Hann átti virkilega flottan leik þar og heldur vonandi uppteknum hætti í Bar í Svartfjallalandi en þangað ætla strákarnir að sækja tvö stig. Vísir/Vilhelm „
Það er fín staða á öllu liðinu fyrir utan að Alexander Petersson er eitthvað slappur. Hann verður vonandi búinn að jafna sig fyrir leik,“ segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari en hann hélt utan ásamt liði sínu í gær. Fram undan er gríðarlega mikilvægur leikur gegn Svartfellingum í Bar á sunnudag. Þetta er annar leikur þjóðanna í undankeppni EM. Ísland byrjaði undankeppnina vel með stórsigri á Ísrael á meðan Svartfellingar töpuðu með fjórum mörkum, 25-21, gegn Serbum í Belgrad. Þetta eru þau þrjú lið í riðlinum sem munu klárlega bítast um farseðlana tvo á EM. Leikurinn ytra er því afar mikilvægur. Ferðalag íslenska liðsins til Bar er afar sérstakt. Strákarnir flugu til Kaupmannahafnar eftir hádegi í gær og gistu þar í nótt. Í morgun var síðan lagt af stað til Svartfjallalands. Flogið var til Belgrad, þaðan farið til Podgorica og loks tekur við klukkutíma rútuferð til Bar. „Við komum um miðjan daginn og náum æfingu seinni partinn sem er fínt. Með þessu missir liðið ekki mikinn svefn og okkur finnst þetta vera fínt fyrirkomulag,“ segir þjálfarinn.Nýtt lið hjá heimamönnum Svartfellingar eru óskrifað blað að mörgu leyti enda búið að stokka liðið aðeins upp. Yngja það. „Það eru komnir yngri og stærri leikmenn inn í liðið. Það eru meiri skyttur. Hættulegir einstaklingar en nýtt lið í leikskipulagi. Þeir eru með mjög sterkan markvörð og spiluðu 5-1 vörn gegn Serbum,“ segir Aron en hann er búinn að horfa á leikinn gegn Serbum og segir leik liðsins hafa breyst með nýjum mönnum. Það er alltaf erfitt að fara til Belgrad og spila gegn Serbum. Svartfellingar stóðu þó í þeim lengi vel og það gefur nokkra vísbendingu um styrkleika liðsins. „Það var hörkuleikur en dómgæslan hallaði aðeins á Svartfellingana. Svartfellingar bitu frá sér og sýndu að þeir geta ýmislegt.“ Aron gerði þrjár breytingar á hópnum milli leikja. Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Hólmgeirsson og Kári Kristján Kristjánsson koma inn í hópinn á kostnað Arnórs Þórs Gunnarssonar, Ernis Hrafns Arnarsonar og Gunnars Steins Jónssonar.Sigurbergur Sveinsson.Vísir/VilhelmTaktískar breytingar „Þetta eru taktískar breytingar. Ásgeir gat komið í þennan leik þar sem konan hans er búin að eiga. Í leiknum gegn Ísrael var ég að reyna að vera með tvo menn í hverri stöðu svo ég gæti dreift álaginu. Svartfellingar eru sterkari og hávaxnari þannig að við þurfum öðruvísi leikmenn. Kári er líkamlega sterkur og góður á línunni gegn stærri mönnum. Ég vildi því fá meiri þyngd á línuna hjá okkur,“ segir Aron en hann tekur hinn lítt reynda Björgvin einnig með í þetta erfiða verkefni. „Við erum með Arnór og Snorra sem eru báðir sterkir miðjumenn og okkur fannst kannski vanta meiri skotógnun utan af velli ef við lendum í vandræðum. Við erum því með góðan jóker í Björgvini. Sigurbergur er svo líka í flottu formi. Það er mikilvægt að hafa svona stráka í hópnum. Það gefur okkur meiri vídd í sóknarleikinn þegar við erum án Arons Pálmarssonar.“Líkamlega erfiður leikur Landsliðsþjálfarinn veit sem er að leikurinn verður mjög erfiður og hann gerir ráð fyrir mótlæti. „Þetta er leikur sem verður líkamlega erfiður. Það verða átök og þeir fastir fyrir og baráttuglaðir á heimavelli. Þessir Balkanþjóðir eru oftast mun sterkari á heimavelli en á útivelli. Við munum selja okkur dýrt og vitum að við verðum að eiga mjög góðan leik til þess að taka tvö stig í Bar.“
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Átta hlaupa inn í nóttina Sport Stærsta lið Noregs í þrot Handbolti Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport „Dæmið okkur eftir eftir næstu sjö leiki“ Fótbolti FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti „Ég trúi þessu ekki ennþá“ Fótbolti „Ég reyndi að standa mig eins og í öllum öðrum leikjum“ Íslenski boltinn Leclerc fyrstur í mark í Texas Formúla 1 Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira