Yfir fannhvíta jörð leggur frið
þegar fellur mjúk logndrífa á grund
eins og heimurinn hikri´ aðeins við
haldi niðri í sér anda um stund
Eftirvæntingu´ í augum má sjá
allt er eitthvað svo spennandi í dag
jafnvel kisa hún tipplar á tá
þorir tæplega að mala sitt lag
Svo berst ómur
og samhljómur
til eyrna af indælum söng
tvíræð bros mætast
og börnin kætast
en biðin er börnunum löng
Loksins kveikt er á kertum í bæ
þá er kátt um öll mannanna ból
og frá afskektum bæ út við sæ
ómar kveðjan um gleðileg jól
Gleðileg jól.
Texti: Ólafur Gaukur
