Bíó og sjónvarp

Gagnrýnir Warner vegna The Devils

Guillermo Del Toro Leikstjórinn er afar ósáttur við vinnubrögð Warner Bros.
Guillermo Del Toro Leikstjórinn er afar ósáttur við vinnubrögð Warner Bros. Vísir/Getty
Guillermo del Toro hefur gagnrýnt kvikmyndaverið Warner Bros. fyrir að koma í veg fyrir að hið umdeilda breska trúardrama, The Devils, verði gefið út á mynddiski í Bandaríkjunum.

Myndin kom út árið 1971 í leikstjórn Kens Russell en Warner Bros. fjármagnaði myndina. „Það eru öfl hjá Warner Bros. sem leyfa fólki ekki að sjá myndina,“ sagði del Toro í fyrirlestri í Toronto. Þar átti hann við umfjöllunarefni myndarinnar sem snýst um að djöfullinn taki sér bólfestu í fólki og einnig særingar á 18. öld í Frakklandi.

Leikstjórinn, sem á að baki Pan's Labyrinth og Hellboy-myndirnar, er mikill aðdáandi The Devils.

Að sögn del Toro hefur Warner Bros neitað að gefa út upprunalegu útgáfuna sem Russell bjó til upp úr bók Aldous Huxley, The Devils of Loudun, rúmlega 40 árum eftir að hún var gerð.

„Mjög fáir hafa séð þessa mynd. Á Englandi er bara hægt að sjá hana ef það á að nota hana í menntunarskyni,“ sagði hann. „Þetta er ekkert slys. Þetta er ekki vegna skorts á eftirspurn. Þetta er ekkert annað en ritskoðun. Það er ekki verið að fara í kringum hlutina,“ bætti hann við.

Í The Devils leikur Vanessa Redgrave brjálaða nunnu sem sakar prest, sem Oliver Reed leikur, um að vera seiðkarl. Breska kvikmyndastofnunin gaf út þessa upprunalegu útgáfu Russells á sínum tíma í Bretlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.