Lífið

Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir prýðir forsíðu Lífsins á föstudaginn

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, var valin leikkona ársins í aðalhlutverki á Eddunni um síðustu helgi, en hún prýðir forsíðu Lífsins, fylgiblaðs Fréttablaðsins á föstudögum, á morgun.

„Ég held að sé mikilvægt ef maður er að verða bitur, sama hvenær það er á ferlinum, að gera eitthvað í því. Það er á manns eigin ábyrgð sem listamanns að leyfa sér ekki að vera bitur lengi því það smitar út í vinnuna. Það eru samt til margar aðrar leiðir og eflaust betri en að hefja lögfræðinám,“ segir Obba og hlær.

„Þetta er erfiður bransi og þó það hafi ekki verið meðvitað, þá varð þessi útúrdúr minn til þess að ég kom aftur á réttari og fallegri forsendum. En það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.