Engin olía í Færeyjum Kristján Már Unnarsson skrifar 27. júní 2014 09:00 Borpallurinn West Hercules borar holurnar tvær í Færeyjum. Statoil/Ole Jørgen Bratland
Færeyingar þurfa enn að bíða eftir olíunni. Norska olíufélagið Statoil tilkynnti í morgun að engin olía hefði fundist við borun á Brugdan 2-brunninum um 130 kílómetra suðaustur af eyjunum. Holan hefði reynst þurr. Þetta var áttunda holan sem boruð var á landgrunni Færeyja eftir að olíuboranir hófust þar um síðustu aldamót. Borpallurinn West Hercules boraði 4.500 metra undir hafsbotninn en fann hvorki olíu né gas. Hafdýpið var 450 metrar. Með Statoil í verkefninu eru bandaríska félagið ExxonMobil, austurríska félagið OMV og færeyska félagið Atlantic Petroleum. Öll nótt eru þó ekki úti þetta sumarið því bora á tvo brunna við Færeyjar í ár. Starfsmenn borpallsins er þegar byrjaðir að gera klárt fyrir seinni holuna, sem nefnd er Súla Stelkur. Hún verður þétt við lögsögumörkin sem snúa að Hjaltlandseyjum. Handan línunnar skammt frá, Bretlandsmegin, hafa fundist olíulindir.Rúni M. Hansen, framkvæmdastjóri Statoil fyrir Færeyjar og Grænland.Rúni M. Hansen, framkvæmdastjóri hjá Statoil, segir í viðtali við færeyska netmiðilinn Oljan að niðurstaðan úr fyrri brunninum hafi ekki áhrif á seinni borunina. Hann viðurkennir þó að það séu vonbrigði þegar brunnar reynist þurrir en það sé hluti af starfinu. Stundum finnist olía og stundum finnist hún ekki.
Tengdar fréttir Herkúlesi ætlað að finna færeyska olíu Tveir olíubrunnar, sem norska olíufélagið Statoil ætlar að bora í lögsögu Færeyja á þessu ári fyrir þrjátíu til fjörutíu milljarða króna, verða dýrasta verkefni í atvinnusögu eyjanna til þessa. Færeyskir ráðamenn eru fullir bjartsýni. 2. janúar 2014 18:45 Færeyingar finna enn meiri olíu í Noregshafi Færeysk-skoska olíufélagið Faroe Petroleum tilkynnti fyrir helgi að fundist hefðu olía og gas á Pil-svæðinu undan Þrændalögum í Noregshafi. Hlutabréf í félaginu ruku upp um nærri 15% 9. mars 2014 09:30 Aldrei lagt jafn mikið í olíuleit í Færeyjum Mesta og dýrasta átak til þessa til að finna olíu við Færeyjar er hafið. Borpallur er kominn í lögsögu eyjanna til að bora tvær holur sem kosta munu allt að fjörutíu milljarða króna. 17. maí 2014 20:15 Færeyskar útgerðir færa sig í olíuiðnað Færeyskir útgerðarmenn, sem áður réru til fiskjar, hafa í auknum mæli snúið sér að olíuútgerð og gera nú út nærri tuttugu sérhæfð skip fyrir olíuiðnað. Olíuútrás Færeyinga skilar nú átta til ellefu prósentum af þjóðartekjum eyjanna. Jan Müller ritstýrir fréttavefmiðli færeyska olíugeirans og hann segir okkur að þótt engin vinnanleg olía hafi ennþá fundist í lögsögu Færeyja starfi samt milli þúsund og fimmtán hundruð Færeyingar við olíuiðnaðinn, margir þeirra erlendis. "Til dæmis eru 250 færeyskir rafvirkjar leigðir út til að vinna í norska olíuiðnaðinum. 9. apríl 2013 19:00 Hlé gert á olíuborun við Færeyjar Statoil og samstarfsaðilar þess, ExxonMobil og Atlantic Petroleum, hafa ákveðið að stöðva tímabundið olíuborun á Brugdan-svæðinu undan ströndum Færeyja. Í tilkynningu frá Statoil kemur fram að þetta sé gert vegna veðurútlits þar sem vetrarmánuðir séu framundan og að færeysk stjórnvöld hafi heimilað frestun til loka árs 2013. 27. nóvember 2012 09:53 Vissara að Færeyingar verði sjálfstæðir áður en olían finnst Atvinnumálaráðherra Færeyja, Jóhan Dahl, kveðst handviss um að Færeyingar verði olíuþjóð. Högni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, segir mikilvægt að Færeyingar fái sjálfstæði áður en olían finnst, - olíufundur geti leitt til þess að Danir verði tregari að slíta sambandinu. Kannanir sýna að Færeyingar skiptast nokkurn veginn til helminga í afstöðunni til þess hvort slíta eigi sambandinu við Dani. En gæti stór olíufundur breytt miklu í sjálfstæðismálunum? Stuðningur Dana nemur um ellefu prósentum af fjárlögum Færeyja og yrði væntalega óþarfur ef olían finnst. Högna Hoydal finnst tryggast að fá sjálfstæðið áður: "Við sjáum hvað er að gerast í Grænlandi. Það er sama mál. 21. apríl 2013 18:40 Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira
Herkúlesi ætlað að finna færeyska olíu Tveir olíubrunnar, sem norska olíufélagið Statoil ætlar að bora í lögsögu Færeyja á þessu ári fyrir þrjátíu til fjörutíu milljarða króna, verða dýrasta verkefni í atvinnusögu eyjanna til þessa. Færeyskir ráðamenn eru fullir bjartsýni. 2. janúar 2014 18:45
Færeyingar finna enn meiri olíu í Noregshafi Færeysk-skoska olíufélagið Faroe Petroleum tilkynnti fyrir helgi að fundist hefðu olía og gas á Pil-svæðinu undan Þrændalögum í Noregshafi. Hlutabréf í félaginu ruku upp um nærri 15% 9. mars 2014 09:30
Aldrei lagt jafn mikið í olíuleit í Færeyjum Mesta og dýrasta átak til þessa til að finna olíu við Færeyjar er hafið. Borpallur er kominn í lögsögu eyjanna til að bora tvær holur sem kosta munu allt að fjörutíu milljarða króna. 17. maí 2014 20:15
Færeyskar útgerðir færa sig í olíuiðnað Færeyskir útgerðarmenn, sem áður réru til fiskjar, hafa í auknum mæli snúið sér að olíuútgerð og gera nú út nærri tuttugu sérhæfð skip fyrir olíuiðnað. Olíuútrás Færeyinga skilar nú átta til ellefu prósentum af þjóðartekjum eyjanna. Jan Müller ritstýrir fréttavefmiðli færeyska olíugeirans og hann segir okkur að þótt engin vinnanleg olía hafi ennþá fundist í lögsögu Færeyja starfi samt milli þúsund og fimmtán hundruð Færeyingar við olíuiðnaðinn, margir þeirra erlendis. "Til dæmis eru 250 færeyskir rafvirkjar leigðir út til að vinna í norska olíuiðnaðinum. 9. apríl 2013 19:00
Hlé gert á olíuborun við Færeyjar Statoil og samstarfsaðilar þess, ExxonMobil og Atlantic Petroleum, hafa ákveðið að stöðva tímabundið olíuborun á Brugdan-svæðinu undan ströndum Færeyja. Í tilkynningu frá Statoil kemur fram að þetta sé gert vegna veðurútlits þar sem vetrarmánuðir séu framundan og að færeysk stjórnvöld hafi heimilað frestun til loka árs 2013. 27. nóvember 2012 09:53
Vissara að Færeyingar verði sjálfstæðir áður en olían finnst Atvinnumálaráðherra Færeyja, Jóhan Dahl, kveðst handviss um að Færeyingar verði olíuþjóð. Högni Hoydal, formaður Þjóðveldisflokksins, segir mikilvægt að Færeyingar fái sjálfstæði áður en olían finnst, - olíufundur geti leitt til þess að Danir verði tregari að slíta sambandinu. Kannanir sýna að Færeyingar skiptast nokkurn veginn til helminga í afstöðunni til þess hvort slíta eigi sambandinu við Dani. En gæti stór olíufundur breytt miklu í sjálfstæðismálunum? Stuðningur Dana nemur um ellefu prósentum af fjárlögum Færeyja og yrði væntalega óþarfur ef olían finnst. Högna Hoydal finnst tryggast að fá sjálfstæðið áður: "Við sjáum hvað er að gerast í Grænlandi. Það er sama mál. 21. apríl 2013 18:40