Arnar Grétarsson ráðinn þjálfari Breiðabliks Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. október 2014 15:32 Arnar Grétarsson starfaði síðast í Belgíu. vísir/getty
Arnar Grétarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari Breiðabliks til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Breiðabliks, en Arnar er uppalinn Bliki og spilaði síðast með liðinu árið 2009 þegar það fagnaði sínum fyrsta bikarmeistaratitli. Undanfarin ár hefur hefur Arnar starfað sem yfirmaður knattspyrnumála hjá belgíska liðinu Club Brugge í Belgíu en þar áður sinnti hann sama starfi hjá AEK í Aþenu. Arnar tekur við starfinu af Guðmundi Benediktssyni sem kvaddi Blika á Twitter fyrr í dag. Guðmundur tók við starfinu af Ólafi Kristjánssyni sem stýrði liðinu frá miðju sumri 2006 þar til hann var ráðinn þjálfari Nordsjælland í sumar. „Það er mikill fengur að því að fá Arnar aftur til starfa hjá Breiðabliki og fagnaðarefni,“ segir Eysteinn PéturLárusson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar. „Arnar hefur mikla reynslu af fótboltanum á stóra sviðinu og þekkir líka vel til starfsins hér í Kópavogi. Um leið þökkum við Guðmundi og Willum fyrir gott starf í þágu félagsins.“ Og Arnar bætir við á heimasíðu Blika: „Ég er gríðarlega ánægður með að hafa tekið þessa ákvörðun að koma aftur heim í Kópavoginn. Þetta er krefjandi en jafnframt mjög spennandi verkefni að halda áfram með og reyna að byggja ofan á þá góðu vinnu sem Ólafur, Guðmundur og Willum hafa unnið undanfarin ár fyrir félagið.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Arnar: Breiðablik spennandi kostur Arnar Grétarsson er að öllu óbreyttu á leiðinni heim til Íslands. 13. október 2014 14:56 Mest lesið Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Markvörður Frankfurt átti stórleik á móti Tottenham Fótbolti Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Fleiri fréttir Elín Metta má spila með Val Fyndnar hárgreiðslur lykillinn að betri mætingu Besta-spáin 2025: Loftið verður að haldast í blöðrunni Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Besta-spáin 2025: Þurfa aftur fimm réttar og jóker Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu Aron Elís með slitið krossband Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ „Bæði svekktur en líka stoltur“ „Verðum bara að vona það besta en undirbúa okkur fyrir það versta“ „Ég tek þetta bara á mig“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 2-1 | Stjarnan slapp með sigur úr grannaslagnum Glórulaus tækling Gylfa Þórs Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-0 | Gylfi Þór sá rautt í sannfærandi sigri LUÍH: Var gerð að fyrirliða Þróttar átján ára Tveir Bestu deildarslagir og bikarmeistararnir mæta KFA Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda „Sá það strax að boltinn myndi enda inni“ Uppgjörið: Fram - ÍA 0-1 | Stórglæsilegt mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigurinn gegn Fram „Ekki fyrsta stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli“ Uppgjörið: KA - KR 2-2 | Tvö rauð á KR í markaleik á Akureyri „Stundum þá skapar maður bara sína eigin heppni með alvöru vinnuframlagi“ Uppgjörið: Valur - Vestri 1-1 | Óvænt stig Djúpmanna á Hlíðarenda Blikar byrjuðu vel með græna nögl á litla fingri Sjáðu fyrstu mörk Íslandsmótsins í ár: Var þetta víti? Sjá meira
Arnar: Breiðablik spennandi kostur Arnar Grétarsson er að öllu óbreyttu á leiðinni heim til Íslands. 13. október 2014 14:56