Lífið

Skírðu dótturina Esmeröldu Amödu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nýbakaðir foreldrar.
Nýbakaðir foreldrar. vísir/getty
Leikaraparið Eva Mendes og Ryan Gosling eignuðust sitt fyrsta barn, litla hnátu, þann 12. september síðastliðinn. Þau eru búin að skíra dótturina sem fékk nafnið Esmeralda Amada Gosling.

Fréttasíðan TMZ birtir fæðingarvottorð stúlkunnar og á því kemur fram að hún hafi komið í heiminn í Santa Monica í Kaliforníu.

Það er kannski tilviljun en Eva lék karakter sem hét Amada í kvikmyndinni We Own the Night frá árinu 2007 en í henni lék hún á móti Mark Wahlberg og Joaquin Phoenix.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×