Tónlist

GusGus með nýja sýningu og nýjan ljóma

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin GusGus heldur útgáfutónleika í Listasafni Reykjavíkur í kvöld.
Hljómsveitin GusGus heldur útgáfutónleika í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. mynd/ari magg
„Við erum að prufukeyra nýtt sjó sem við erum að fara með um allan heim, alveg austur til Síberíu og alveg vestur til Mexíkós, og allt þar á milli,“ segir Högni Egilsson, einn söngvara hljómsveitarinnar GusGus sem heldur útgáfutónleika í Hafnarhúsinu í kvöld.

Nýjasta plata sveitarinnar, Mexico, kom út fyrr á þessu ári og ætlar GusGus að fylgja henni eftir með heljarinnar tónleikaferðalagi um allan heim. „Við erum að fara með þetta sjó út um allan heim og verðum á miklu tónleikaferðalagi fram að jólum,“ segir Högni.

GusGus er þekkt sem afbragðs tónleikasveit og eru tónleikar sveitarinnar jafnan mikið sjónarspil. „Við höfum unnið nýtt „visual“ efni sem er unnið af sama teymi og hannaði nýju plötuna. Við verðum með stóra skjái þar sem keyrt verður myndefni í bland við tónlistina,“ útskýrir Högni um tónleikana.

Sveitin kom fram á uppseldum tónleikum í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. „Það gekk mjög vel í Köben og við prufuðum við sjóið þar. Þetta er ný lína frá GusGus og nýr ljómi,“ bætir Högni við. Uppselt er á marga tónleika sveitarinnar í Evrópu, sem sýnir hversu vinsæl hún er.

GusGus ætlar að leika efni af nýjustu plötunni en einnig eldra efni. „Þorrinn af lögunum er af síðustu tveimur plötum en við spilum líka eitthvað af eldra efni.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. „Ég hlakka mikið til þess að syngja þetta fyrir fólkið. Við hlökkum mikið til tónleikaferðalagsins,“ bætir Högni við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×