Tónlist

ADHD-menn böðuðu sig berrassaðir í Þýskalandi

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin ADHD lýkur tónleikaferðalagi sínu í kvöld í Gamla bíói.
Hljómsveitin ADHD lýkur tónleikaferðalagi sínu í kvöld í Gamla bíói. mynd/spessi
„Þetta er eins og fjölskylda og hefur alltaf verið það,“ segir Magnús Trygvason Eliassen, trommuleikari hljómsveitarinnar ADHD, en sveitin hefur verið á tónleikaferð um Evrópu undanfarnar vikur.

Hljómsveitina skipa ásamt Magnúsi þeir Davíð Þór Jónsson, Ómar Guðjónsson og Óskar Guðjónsson og var hún mynduð í kringum blúshátíð Hafnar í Hornafirði árið 2007.

Sveitin hafði hægt um sig á síðasta ári en gaf út tvær plötur árið 2012, AdHd 3 og AdHd 4. Tónleikaferðin er þriðja tónleikaferðalag þeirra á jafnmörgum árum. „Síðustu þrjár plöturnar okkar voru gefnar út af þýskri útgáfu og höfum við farið svona rúnt einu sinni á ári.“

Sveitin hefur alls gefið út fjórar plötur. Fyrsta platan, AdHd, var valin djassplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2010.

Magnús, sem staddur var 1.230 metra yfir sjávarmáli þegar blaðamaður náði tali af honum, segir stemningu hafa verið mjög góða á tónleikum sveitarinnar og að mætingin hafi alls staðar verið alveg frábær.

ADHD hefur verið á ferðalagi í rúmar tvær vikur og leikið á þrettán tónleikum.

Fyrir utan tónleikahald hafa þeir félagar notað tímann í ýmislegt áhugavert. „Ég fór í fyrsta skipti í böð þar sem enginn var í sundklæðnaði. Þetta var í raun eins og fín sundlaug, nema það voru allir bara kviknaktir,“ segir Magnús léttur í lundu. Sveitin baðaði sig á þessum áhugaverða stað í Neuenburg í Svartaskógi.

Magnús, sem er yngsti meðlimur ADHD, segir sveitina nána þrátt fyrir aldursmuninn. „Ég er svo gömul sál þannig að við náum allir rosalega vel saman.“

Sveitin lýkur tónleikaferðalaginu í Gamla bíói í kvöld en ætlar sér strax að loknum tónleikum að demba sér í hljóðver og taka upp nýja plötu. Tónleikagestir munu fá forsmekk af því sem koma skal, því þeir félagar lofa frumflutningi á nokkrum lögum í Gamla bíói.

Lagalisti ADHD er eiginlega aldrei eins á tvennum tónleikum í röð en þeir félagar leika lög af öllum plötunum sínum.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og kostar 3.300 krónur inn. Miðasala á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.