Bardagar í kringum SOS barnaþorp í Suður-Súdan Stefán Árni Pálsson skrifar 8. janúar 2014 10:33 Almennir borgarar í Malakal. mynd / aðsend
Bardagi á milli stjórnarhers Suður-Súdans og uppreisnarmanna er nú ekki eingöngu í höfuðborginni, Juba, heldur einnig á öðrum svæðum. Á jóladag hófst bardagi í Malakal þar sem eina SOS barnaþorp landsins er staðsett en 20 Íslendingar eru styrktarforeldrar barna í SOS barnaþorpinu í Malakal. Bardaginn stóð í fjóra daga og á þeim tíma þurftu öll börn og starfsmenn SOS Barnaþorpsins að halda sig innan dyra. Þá settu starfsmenn þorpsins upp varnargarð til þess að þorpið væri sem öruggast.Ungabarn í SOS Barnaþorpinu í Malakal.Ekki þótti óhætt að flytja börn og SOS mæður þeirra á hættuminni stað, þar sem mikil hætta stafaði af því að vera utandyra á götum Malakal. Nokkrir uppreisnarmenn voru særðir þegar þeir reyndu að flýja í gegnum SOS svæðið en til allrar lukku særðist ekkert barnanna eða starfsfólk SOS. Verslanir og bankar í Malakal hafa verið teknir yfir og því óttast starfsmenn SOS að skortur verði á mat og öðrum vörum. Einnig hræðast þeir að annar bardagi hefjist fljótlega. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið frá því að ófriðurinn hófst í Suður-Súdan í nýliðnum mánuði og 200.000 manns hafa flúið heimili sín.
Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Innlent Fleiri fréttir Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Sjá meira