Tónlist

Adele slær sölumet

Adele heldur áfram að slá í gegn.
Adele heldur áfram að slá í gegn. Nordicphotos/Getty
Nú þegar um þrjú ár eru liðin frá útgáfu plötu Adele sem ber titilinn 21, hefur platan selst í yfir þremur milljónum eintaka á stafrænu formi. Þetta er fyrsta platan sem nær þessum árangri á stafrænu formi samkvæmt Rolling Stone tímaritinu.

Þessar mögnuðu sölutölur koma svo sem ekki á óvart vegna þess að samkvæmt Billboard listanum var platan enn í 21. sæti yfir mest seldu plötur ársins 2013, platan kom samt út árið 2011.

Árið 2012 náði sama plata einnig þeim merka áfanga að vera 21. platan til að seljast í meira en tíu milljónum eintaka, á einungis 92 vikum.

Adele vinnur nú hörðum höndum að nýrri plötu og mun hún að öllum líkindum líta dagsins ljós á þessu ári. Hér fyrir neðan er myndband af söngkonunni koma fram í Royal Albert Hall en hún hlaut Grammy-verðlaun fyrir þessa tónleikaútgáfu af laginu Set Fire to the Rain.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.