Lífið

Gaf Clooney handgerð kokteilglös

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
George og Amal.
George og Amal. vísir/getty
Mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney gaf eiginmanni sínum, leikaranum George Clooney, handgerð kokteilglös frá Feneyjum í brúðkaupsgjöf samkvæmt E! News.

„Amal elskar hugmyndina um að þau eigi sömu kokteilglös og þau notuðu á Cipriani-hótelinu í Feneyjum,“ segir heimildarmaður fréttaveitunnar en skötuhjúin létu gefa sig saman á Cipriani-hótelinu í lok síðasta mánaðar.

„George dáðist að þeim í hvert sinn sem hann horfði á þau í brúðkaupinu og þau höfðu ekki tíma til að versla í Feneyjum þannig að hún pantaði þau sem brúðkaupsgjöf fyrir hann. Það þýðir að þau hugsa alltaf um brúðkaupið og góðu minningarnar þegar þau fá sér kokteil heima.“


Tengdar fréttir

Gifta sig í Feneyjum

Styttist í stóra daginn hjá George Clooney og Amal Alamuddin.

Amal er ekki ólétt

Sögusagnir um barneignir George Clooney og unnustu hans ekki sannar.

Sæt á stefnumóti

Stórleikarinn George Clooney og Amal Alamuddin njóta lífsins á Ítalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×