Lífið

Ég elskaði kókaín

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Amy Poehler skrifar um fíkniefnaneyslu sína í nýju endurminningunum sínum, Yes Please sem koma út 28. október. 

„Ég prófaði kókaín sem ég elskaði strax en hataði á endanum,“ skrifar Amy.

„Kókaín er frábært ef maður vill hanga með fólki sem maður þekkir ekki vel og spila borðtennis alla nóttina,“ bætir hún við og segir að kókaín sé hins vegar slæmt fyrir flest allt annað. Þá lýsir hún gamlárspartíi þar sem var fíkniefni í boði. Teitið var ofboðslega skemmtilegt en næsti dagur var erfiður.

„Ég man líka eftir næsta degi þegar ég hélt að ég ætti enga vini og var svo döpur að mig langaði að sökkva ofan í teppið og búa þar að eilífu.“

Leikkonan er líka hrifin af því að reykja gras. Hún segist þó hafa breytt ýmsu eftir að synir hennar, Archie og Abel, komu í heiminn en þá á hún með fyrrverandi eiginmanni sínum, Will Arnett.

„Ég get ekki komið fram, ekið eða skrifað þegar ég er í vímu og þess vegna reyki ég minna gras en ég gerði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×