Lífið

Friends-þættirnir á Netflix

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpsþættirnir Friends verða aðgengilegir á Netflix þann 1. janúar á næsta ári. Geta þeir sem hafa aðgang á Netflix því horft á alla 236 þættina í einni beit ef þeir vilja.

Netflix tilkynnti þetta á Twitter í dag og hafa Friends-aðdáendur tekið gleði sína yfir þessum fréttum.

Fyrsti þáttur af Friends var frumsýndur á NBC þann 22. september árið 1994. Alls voru gerðar tíu seríur af þáttunum og var sá síðasti sýndur þann 6. maí árið 2004.

Friends er enn þann dag í dag einn vinsælasti gamanþáttur allra tíma og hlaut alls 62 tilnefningar til Emmy-verðlaunanna á meðan þættirnir voru í sýningu.

Með hlutverk vinanna fara David Schwimmer, Courteney Cox, Jennifer Aniston, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc og Matthew Perry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×