Lífið

Fékk fyrstu byssuna sex ára

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Brad Pitt segir í viðtali við Radio Times að hann hafi fengið fyrstu byssuna sína þegar hann var sex ára.

„Bróðir minn fékk byssu pabba míns og ég fékk byssu afa míns þegar ég var í leikskóla,“ segir Brad um hefðir í sinni fjölskyldu. Þegar hann var átta ára gamall skaut hann í fyrsta sinn af byssu.

„Það jákvæða er að faðir minn kenndi mér að bera mikla virðingu fyrir vopninu,“ segir Brad og bætir við að hann sé ekki öruggur á heimili sínu nema hann viti af byssu í húsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×