Lífið

Kærir upptökustjórann fyrir nauðgun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ke$ha.
Ke$ha. vísir/getty
Söngkonan Ke$ha, 27 ára, er búin að kæra upptökustjórann sinn Dr. Luke, 41 árs, og vonast söngkonan til að losna undan samningi við hann.

Tímaritið Us Weekly er með kæruna undir höndum en í henni heldur söngkonan því fram að Dr. Luke hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi síðan hún skrifaði undir samning hjá honum þegar hún var átján ára.

Ke$ha fór í meðferð gegn átröskun í janúar á þessu ári og segir að Dr. Luke hafi oft neytt hana til að drekka áfengi eða nota fíkniefni svo hann gæti fengið sínu framgengt kynferðislega.

Ke$ha segir að Dr. Luke hafi eitt sinn gefið henni pillur og að næsta dag hafi hún vaknað nakin í rúminu hans, „aum, veik og mundi ekki hvernig hún endaði þar.“ Í kjölfarið hótaði Dr. Luke henni öllu illu ef hún segði einhverjum frá nauðguninni. Hann ætlaði ekki aðeins að eyðileggja líf hennar heldur einnig fjölskykldu hennar.

Þá á Dr. Luke einnig að hafa úthúðað henni ítrekað og kallað hana feitan ísskáp sem varð til þess að Ke$ha fékk átröskun.

Dr. Luke hefur svarað ákærunni með því að kæra Ke$hu og heldur því fram að þessar frásagnir séu lygar móður hennar, Pebe Sebert. Upptökustjórinn heldur því einnig fram að söngkona hafi reynt að kúga út úr honum pening. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×