Menning

Leiðin frá bernskunni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Melasól, lambagras og fleiri fögur blóm skreyta umhverfi Reykjanesbrautar á sumardegi þegar að er gáð.
Melasól, lambagras og fleiri fögur blóm skreyta umhverfi Reykjanesbrautar á sumardegi þegar að er gáð. Mynd/Einar Falur Ingólfsson
„Reykjanesbraut er vegurinn sem ég hef ekið frá æsku því ég ólst upp á Suðurnesjum. Flestir þekkja bara malbikið og hraunbreiðuna í kring en fyrir sex, sjö árum ákvað ég að skoða betur hvaða heim væri að finna ef ég beygði út af,“ segir Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari sem opnar ljósmyndasýningu klukkan 18 í dag í galleríinu Listamenn við Skúlagötuna 32-34.

Upphafið rekur hann til sýningarinnar Aftur sem hann vann árið 2007 fyrir Listasafn Reykjanesbæjar þar sem hann sneri aftur til æskuslóðanna.

„Í kjölfarið ákvað ég að stækka verkefnið og taka alla þessa leið frá bernskunni til míns heims í dag og það vill svo til að það er Reykjanesbrautin,“ segir listamaðurinn sem stefnir að því að gera stóra bók með myndunum sem hann hefur tekið í nágrenni þessa fjölfarna vegar en sýnir nú fimmtán þeirra sem hann segir gefa ágæta vísbendingu um verkefnið. 

Nú eru líka ljósmyndadagar hér í Reykjavík og sýning Einars passar vel inn í þá dagskrá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.