Sport

Klappstýra slasaðist á leik í NFL-deildinni

Það fór betur en á horfðist í fyrstu.
Það fór betur en á horfðist í fyrstu. vísir/getty
Það fór um áhorfendur á leik Baltimore og Tennessee í NFL-deildinni í gær er klappstýra slasaðist og lá eftir hreyfingarlaus.

Klappstýrurnar gera alls konar hættuleg atriði á leikjum og láta til að mynda kasta sér hátt upp í loftið.

Í einu slíku kasti fór allt til fjandans og hún lenti illa. Læknar Baltimore hlúðu að henni áður en hún var flutt á spítala.

Hún meiddist á höfði, hálsi og baki en var útskrifuð af sjúkrahúsinu í gærkvöldi. Hún verður þó líklega á meiðslalistanum í næsta leik.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×