Sport

Mömmur heiðraðar í aðdraganda Sochi | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Skjáskot
Þegar þú fellur til jarðar er það oftar en ekki mamma sem kemur þér til bjargar.

Þetta er inntakið í nýrri auglýsingu Proctor & Gamble í aðdraganda Vetrarólympíuleikanna sem hefjast í Sochi í Rússlandi í febrúar. Auglýsing fyrirtækisns fyrir Ólympíuleikanna í London árið 2012 beindi einnig spjótum sínum að mæðrum og féllu vafalítið einhver tár við áhorfið.

Í nýju auglýsingunni, sem sjá má auk hinnar eldri hér að neðan, er fylgst með móðurhlutverkinu frá því börnin læra að ganga. Alltaf er það móðirin sem hjálpar barninu á fætur þegar það dettur. Svo er það einnig þegar börnin eru komin á skauta, skíði og snjóbretti, slasa sig og þarfnast aðhlynningar. Þegar fram líða stundir, og kemur að stóru stundinni, er svo mamma uppi í stúku og fylgist með afreksíþróttamanninum sínum.

Horft var á fyrri auglýsinguna í yfir 21 milljón skipti á sínum tíma samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Koma verður í ljós hvort nýja auglýsingin veki jafnmikla lukku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×