Lífið

Bakvið tjöldin með súperliði Pepsi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar markaðsefni fyrir nýtt súperlið Pepsi var tekið en liðið var afhjúpað í gær. Á myndunum sjást margir frægustu fótboltamenn heims stilla sér upp fyrir kameruna.

Íslenski knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er í liðinu með fótboltagoðunum
 Lionel Messi, Robin van Persie, Sergio Aguero, Jack Wilshire, David Luiz, Sergio Ramos, Juan Guillermo Cuadrado, Clint Dempsey, Tarik Elyounoussi, Maynor Figueroa, Mario Gomez, Vincent Kompany, Kemar Lawrence, Victor Moses, Peter Osaze Odemwingie, Oribe Peralta, Andriy Pyatov  og  Mohamed Salah.  

Þessi hópur myndar eitt magnaðasta og hæfileikaríkasta lið allra tíma að mati Pepsi og munu knattspyrnumenn hvetja aðdáendur um heim allan til að tileinka sér slagorðið „Live for Now“ á árinu 2014.




Afhjúpun súperliðsins markar upphafið á spennandi viðburðum út árið sem eru hluti af Pepsi-fótboltaherferðinni 2014. Leikmennirnir munu meðal annars leika aðalhlutverkið í alþjóðlegri sjónvarpsauglýsingu sem afhjúpuð verður síðar á árinu. Þá mun andlit Gylfa prýða hálfs líters og tveggja lítra Pepsi og Pepsi Max-flöskur sem fara í sölu á Íslandi strax eftir páska.

Gylfi er mikill Pepsi-maður.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.