Lífið

Mamma líka í meðferð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonana Ke$ha fór í meðferð 3. janúar vegna þess að hún þjáist af átröskun. Nú er móðir hennar, Pebe Sebert, líka farin í meðferð á sama stað og dóttirin.

"Ég er farin í meðferð á Timberline Knolls vegna áfallaröskunar. Ke$ha hvatti mig til þess," segir Pebe í yfirlýsingu til tímaritsins PEOPLE. Pebe hefur ásakað pródúsent dóttur sinnar, Dr. Luke, um að kalla hana ísskáp og þrýst á hana að grennast. Dr. Luke hefur vísað þessum ásökunum á bug.

"Þetta mál með Dr. Luke hefur sundrað fjölskyldu okkar og tekið yfir líf okkar. Ke$ha vill að ég jafni mig með henni."

Mæðgurnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×