Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Noregur 31-26 | Draumabyrjun strákanna í Álaborg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Ísland vann gríðarlega mikilvægan sigur á Noregi í fyrsta leik sínum á EM í handbolta. Strákarnir okkar gáfu tóninn með ótrúlegum upphafsmínútum.

Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur hjá strákunum okkar sem mæta Ungverjum á þriðjudaginn. Með sigri í þeim leik verður sæti Íslands í milliriðlakeppninni tryggt.

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði, sem missti af öllum undirbúningnum fyrir mótið vegna meiðsla átti stórleik og skoraði níu mörk, þar af þrjú af vítalínunni. Ásgeir Örn Hallgrímsson átti svo stórbrotinn síðari hálfleik og skoraði sex mörk.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Íslands, var valinn maður leiksins en hann varði fimmtán skot í leiknum - mörg þeirra úr dauðafærum Norðmanna. Varnarleikur Íslands átti einnig þátt í máli en hann var á köflum gríðarlega öflugur í dag, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Magnus Dahl átti stórleik í marki Norðmanna og hélt sínum mönnum inni í leiknum fram á lokamínúturnar. Engu að síður voru strákarnir okkar með undirtökin strax frá fyrstu mínútu og munaði mestu um frábæra byrjun en Ísland var með 8-2 forystu eftir tíu mínútna leik.

Ísland varð þó fyrir áfalli í leiknum því að Aron Pálmarsson sneri sig á ökkla snemma í leiknum. Hann var þá búinn að skora tvö mörk en kom ekki meira við sögu þrátt fyrir að hafa fengið meðhöndlun sjúkraþjálfara á bekknum. Jákvæðu fréttirnar eru þó þær að Ísland náði að vinna sannfærandi sigur á góðu liði Noregs án eins okkar besta leikmanns.

Fjölmargir leikmenn stigu upp í leiknum og var í raun sama hvaða leikmenn komu inn á. Rúnar Kárason skoraði fjögur góð mörk og Arnór spilaði vel eftir að Aron meiddist. Þetta var þó fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar og óhætt að segja að allir leikmenn Íslands hafi átt góðan dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×