Innlent

Tvær veltur vegna hálku

Gissur Sigurðsson skrifar
Víða er hálka á þjóðvegum landsins og urðu tvö óhöpp í gærkvöldi sem rekja má til hálku. Annarsvegar rann bíll út af veginum yfir Öxnadalsheiði í gærkvöldi en engan um borð sakaði.

Tvennt slapp líka ómeitt þegar bíll valt út af Suðurlandsvegi við Þrengsla afleggjara í gærkvöldi. Hann valt út í djúpan snjó og skemmdist lítið. Annars eru allar helstu leiðir greiðfærar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×