Lífið

Þetta toppar allt

Ellý Ármanns skrifar
mynd/365 miðlar
„Fjöldi Íslendinga hefur áhuga á hestamennsku og eru hestamenn með þriðja stærsta sérsambandið innan ÍSÍ. Það verður gaman að fá að þjónusta þennan stóra hóp, en með beinum útsendingum frá Meistaradeild í hestaíþróttum viljum við hér hjá 365 auka þjónustu við áhorfendur og auka fjölbreytni,“ segir Telma Tómasson sem hefur umsjón með sannkallaðri hestaveislu á Stöð 2 sport í vetur.

Auk beinna útsendinga frá keppnum í Meistaradeildinni verða sendir út samantektarþættir, spjallað um hesta, spáð í spilin og gamansögur sagðar. Að auki verða þættir um KS deildina á Norðurlandi, keppni á ís og fleira.

„Ég hef fengist við ótal frábær verkefni hér á Stöð 2 en hygg að þetta toppi allt annað, í skemmtilegheitum í það minnsta,“ segir Telma kampakát.



Hér má sjá hvernig dagskránni verður háttað á Stöð 2 Sport:

  • 23. jan. Fjórgangur (BEINT)
  • 30. jan. Samantekt og spjall
  • 6. feb. Gæðingafimi (BEINT)
  • 13. feb. Samantekt og spjall
  • 20. feb. Fimmgangur (BEINT)
  • 27. feb. Samantekt og spjall
  • 6. mars Tölt (BEINT)
  • 13. mars Samantekt og spjall
  • 22. mars Skeiðgreinar úti
  • 27. mars Samantekt og spjall
  • 4. apríl Slaktaumatöltið, lokahátíð (BEINT)
  • 10. apríl Samantekt og spjall





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.