Innlent

Litríkir fingravettlingar forsetahjónanna vekja athygli

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Forsetahjónin eru glæsileg í nýju fingravettlingunum.
Forsetahjónin eru glæsileg í nýju fingravettlingunum.
Litríkir vettlingar forsetahjónanna, Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff, sem sjást á nýrri mynd á Facebook-síðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, hafa vakið athygli.

Á myndinni eru forsetahjónin ásamt íslenskum keppendum á Ólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi.

Þessir litríku fingravettlingar eru opinberir fingravettlingar Ólympíuleikanna. Hægt er að kaupa vettlinga í vefverslun Ólympíuleikanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×