Blendin viðbrögð við ræðu Sigmundar Davíðs Jakob Bjarnar skrifar 13. febrúar 2014 11:33 Hreggviður Jónsson hlustar forviða á forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í gær. visir/pjetur
Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í gær hefur vakið mikla athygli. Þeir sem Vísir hefur rætt við telja ræðuna hafa verið verulega á skjön við tilefnið. Nokkur eftirvænting ríkti meðal fundarmanna en þetta var í fyrsta skipti í fjögur ár sem forsætisráherra heiðrar samkomuna með nærveru sinni. Hreggviður Jónsson er formaður Viðskiptaráðs Íslands: „Mér fannst hann vera að gera upp fortíðina gagnvart sjálfum sér og öðrum. Ég átti von á því að hann myndi blása meira svona til sameiginlegrar sóknar. Fjalla um þau verkefni sem við gætum verið að leysa saman.“ Hreggviður segir að menn almennt, þeir sem á þinginu voru, hafi verið forviða. „Ég held að að menn séu almennt svipaðrar skoðunar og ég. Menn áttu kannski von á því að þarna yrði talað meira um það sem framundan er, það sem við þurfum að fara að takast á við,“ segir Hreggviður og vísar í því sambandi til vettvangs sem gengur undir nafninu samráðsvettvangur. „Vinnan sem fór í gang í kjölfar McKinsey-skýrslunni í fyrra; sameiginlegur vettvangur atvinnulífs, stjórnvalda og launþegahreyfingar sem eru að ræða sameiginleg mál sem við viljum komast áfram með.“ Til marks um viðbrögðin; Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, skrifaði leiðara sem birtist í dag og fjallar um ræður Hreggviðs annars vegar og ræðu Sigmundar Davíðs hins vegar. Þar segir meðal annars: „Þeir sem bjuggust við að fá þau svör [um hver væri peningastefna stjórnvalda] í ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Viðskiptaþinginu urðu fyrir vonbrigðum. Ráðherrann varði drjúgum hluta ræðu sinnar í kvartanir og skammir.“
Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira