„Sendið hann í fangelsi“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. febrúar 2014 18:09 MYND/AFP
Allt er á suðupunkti í Venesúela þar sem mikil mótmæli og miklar óeirðir hafa geisað upp á síðkastið. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Leopoldo Lopez, er nú í haldi lögreglu. Handtökuskipan var gefin út á hendur Lopez fyrr í þessari viku en gaf Lopez sig ekki fram fyrr en í fyrradag. Hann gaf sig fram fyrir framan þúsundi mótmælanda og sagðist hann vonast til þess að í kjölfar handtöku hans muni stjórnvöld Venezúela opna augun og taka eftir allri þeirri spillingu og efnahagslegu hörmungum sem sósíalíska reglan hefur leitt af sér síðastliðin fimmtán ár. Hann er ákærður fyrir íkveikju, glæpsamlega hegðun og fyrir að hafa hvatt mótmælendur til ofbeldis, en hann var upphafsmaður mótmælagöngunnar sem fram fór fyrr í þessari viku þar sem þrír létu lífið. Lopez, sem er 42 ára gamall, gæti átt yfir höfði sér að minnsta kosti tíu ára fangelsisvist. Forseti Venesúela, Nicolas Maduro, gaf það í skyn í ræðu sinni í dag, sem send var út á landsvísu, að Lopez muni áfram sitja í gæsluvarðhaldi þar til ákæra verður gefin út. „Ég sagði, sendið hann í fangelsi. Það er það sem mun gerast fyrir alla fasista,“ sagði Maduro í ræðu sinni sem stóð yfir í rúmar tvær klukkustundir. Maduro hefur nú gert þrjá sendiráðsfulltrúa brottræka en sakar hann þá um að hafa átt fundi með stjórnarandstæðingum. Fimm manns hafa látið lífið og tugir særst í átökunum. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hvatti stjórnvöld í landinu til að sleppa mótmælendum sem hafa verið fangelsaðir í átökunum síðastliðna daga.
Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Innlent Fleiri fréttir Páfinn sendir frá sér tilkynningu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu Sjá meira