Sport

Tíundi bikarsigur Gerplu í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andrea Ingibjörg, Norma Dögg og Thelma Rut voru í meistaraliði Gerplu.
Andrea Ingibjörg, Norma Dögg og Thelma Rut voru í meistaraliði Gerplu. Vísi/Valli
Gerpla varð í gær bikarmeistari í áhaldafimleikum tíunda árið í röð en um sögulegan árangur er að ræða.

Frjálsar æfingar fóru fram í gær en mótið var haldið í Versölum í Kópavogi. Gerpla varð í fyrsta sæti en næst komu lið Ármanns og Bjarkar.

Ármann sigraði í frjálsum æfingum í karlaflokki og Gerpla varð í öðru sæti. Ármenningar endurheimtu þar með titilinn sem þeir misstu til Gerplumanna í fyrra.

Bikarmeistarlið Gerplu er þannig skipað: Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir, Norma Dögg Róbertsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir, Andrea Ingibjörg Orradóttir og Agnes Suto.

Bikarmeistarlið Ármanns er þannig skipað: Bjarki Ásgeirsson, Jón Sigurður Einarsson, Halldór Dagur Jósepsson, Sigurður Andrés Sigurðarson og Sindri Steinn Davíðsson Diego.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×