Sport

Kristján Helgi og Kristín Íslandsmeistarar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Karatesamband Íslands
Íslandsmótið í kata var haldið í Hagaskóla í dag og urðu þau Kristján Helgi Carrasco og Kristín Magnúsdóttir hlutskörpust.

Kristján Helgi, sem er einnig meistari í kumite, lagði tvo fyrrum Íslandsmeistara á leið sinni í úrslitaleikinn - þá Pathipan Kristjánsson og Elías Snorrason en sá síðarnefndi vann í fyrra.

Hann mætti Sverri Magnússyni í úrslitunum en Kristján Helgi bar sigur úr býtum og endurheimti þar með titilinn sem hann vann árið 2012.

Það var ljóst að nýr meistari yrði krýndur í kvennaflokki þar sem Aðalheiður Rósa Harðardóttir, meistari síðustu þriggja ára, er frá vegna meiðsla.

Kristín mætti Svönu Kötlu Þorsteinsdóttur, stöllu sinni úr Breiðabliki, í úrslitunum og vann eftir spennandi viðureign, 3-2.

Breiðablik varð einnig meistari í hópkata og vann því Kristín tvöfalt að þessu sinni.

Breiðablik vann einnig hópkata í karlaflokki en það er í fjórða árið í röð sem Blikar vinna þann titil. Breiðablik varð einnig stigakeppnina fjórða árið í röð og er því Íslandsmeistari félaga.

Kata kvenna:

1. Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik

2. Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik

3. Katrín Kristinsdóttir, Breiðablik

3. Erla Kristín Arnalds, Breiðablik

Kata karla:

1. Kristján Helgi Carrasco, Víkingur

2. Sverrir Magnússon, KFR

3. Heiðar Benediktsson, Breiðablik

3. Elías Snorrason, KFR

Hópkata karla:

1. Breiðablik; Davíð Freyr, Heiðar, Magnús kr.

2. Þórshamar; Bogi, Eiríkur, Sæmundur

3. Breiðablik B; Aron Breki, Hólmgeir Gauti, Jökull Máni

Hópkata kvenna:

1. Breiðablik; Kristín, Katrín, Svana Katla

2. Þórshamar; María, Lára, Sólveig

3. Akranes; Eydís, Hafdís, Valgerður

Heildarstig félaga:

1. Breiðablik, 22 stig

2. Þórshamar, 8 stig

3. Víkingur, 3 stig

3. KFR, 3 stig

5. Akranes, 2 stig

Fjögur efstu í kata kvenna.
Fjórir efstu í kata karla.
Sigurlið Breiðabliks í hópkata kvenna.
Lið Breiðabliks sem vann hópkata karla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×