Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, en hann skaut hana í gegnum lokaða baðherbergishurð á heimili sínu í Pretoríu í Suður-Afríku í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur.
Steenkamp varð fyrir þremur skotum sem hæfðu hana í handlegg, mjöðm og höfuð. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. Steenkamp var 29 ára gömul.

Hræðileg öskur nóttina örlagaríku
107 manns bera vitni í málinu og er Michelle Burger ein vitnanna. Hún býr í tæplega 200 metra fjarlægð frá heimili Pistorius. Hún var fyrsta vitnið í málinu og sagðist hún hafa heyrt hræðilegt kvenmannsöskur nóttina örlagaríku. Hún sagðist fyrst hafa heyrt einn skothvell, síðan hafi komið stutt þögn og þrjú skot fylgdu þar á eftir en það gefur í skyn að Pistorius hafi stöðvað og haldið síðan áfram að skjóta kærustu sína. Verjandi hlauparans sagði að öskrin væru í raun verið Pistorius sjálfur.
Ætlaði að tileinka líf sitt guði
Annað vitni, læknirinn Johan Stipp, sagðist hafi komið að Oscari þar sem hann kraup á hnjánum við hlið kærustu sinnar, grátandi og biðjandi til guðs um að leyfa henni að lifa og þá myndi hann myndi tileinka líf sitt guði. Stipp segir hann hafa haft aðra hönd á nára Steenkamp og tvo fingur hinnar í munni Steenkamp. Svo hafi virst sem hann væri að reyna að koma henni til bjargar. Á meðan á vitnisburði Stipps stóð hélt Pistorius yfir eyrun á sér á meðan hann skalf og grét.

Vikan endaði svo á vitnisburði fyrrum kærustu Oscars, Samönthu Taylor. Samband þeirra Pistorius hófst þegar Taylor var sautján ára gömul en þegar talið barst að sambandsbrestum þeirra brast Samantha Taylor í grát. Sagði hún hlauparann hafa haldið tvisvar sinnum fram hjá henni meðan samband þeirra stóð yfir með Reevu Steenkamp.
Taylor sagði Pistorius haldinn byssuþráhyggju og sagði frá atviki þar sem Oscar átti að hafa skotið úr byssu útum sóllúgu bíls. Fyrr í vikunni hafði vinur Oscars sagt frá því hvernig hann hafði óvart hleypt af byssu inni á veitingastað, mánuði áður en hann skaut kærustu sína. Hann segir hann hafa fengið vin sinn til að taka á sig sökina fyrir það.
Réttarhöldin yfir Oscari halda áfram á mánudaginn, en innan við 10% þeirra vitna sem kalla á fyrir dóminn hafa borið vitni nú þegar og er því búist við að réttarhöldin geti tekið nokkrar vikur.