Lífið

Ljómaði á stóra daginn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Stacy Keibler gekk að eiga Jared Pobre í Mexíkó fyrir nokkrum dögum og deilir myndum úr brúðkaupinu í tímaritinu People.

Stacy og Jared eru búin að vera vinir í fimm ár en byrjuðu að deita síðasta haust, aðeins ári eftir að Stacy hætti með hjartaknúsaranum George Clooney.

Parið lét gefa sig saman á ströndinni.

„Þetta var mikill fögnuður ástarinnar með allri fjölskyldunni, betra en ég hefði getað dreymt um,“ segir hún sem klæddist kjól frá Monique Lhuillier á stóra daginn.

Falleg brúður.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.