Tónlist

Dramatískt lag frá Svartfjallalandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sergej Ćetković fer í Eurovision-keppnina fyrir hönd Svartfjallalands með lagið Moj Svijet, sem heitir á ensku My World.

Sergej sjálfur samdi bæði lag og texta og mun flytja lagið í fyrri undanúrslitakeppninni í Kaupmannahöfn þann 6. maí og aftur þann 10. maí í aðalkeppninni ef hann kemst áfram.

Sergej hefur verið viðloðinn tónlistarbransann um árabil í heimalandi sínu og hefur mikla trú á laginu.

„Ætli sé eki hægt að lýsa Moj Svijet sem Eurovision-lagi en á sama tíma endurspeglar það mig og minn stíl. Ég er mjög spenntur og ég óttast ekkert því ég held að áhorfendur muni taka laginu mjög vel,“ segir hann.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.