Halldór Orri samdi við sænskt lið | Rauschenberg kemur aftur Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. mars 2014 11:06
Stjarnan hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku í Pepsi-deild karla í fótbolta en Halldór Orri Björnsson, einn albesti leikmaður liðsins undanfarin ár, er búinn að semja við sænska liðið Falkenbergs FF.Þetta kemur fram á heimasíðu Stjörnunnar en þar segir að Halldór hafi samið til eins árs og verði því eðlilega ekki með Garðabæjarliðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Falkenbergs FF er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni en þar hefur liðið aldrei verið áður. Það vann 1. deildina á síðustu leiktíð og reynir nú að styrkja sig fyrir átökin í efstu deild. „Þetta var mjög erfið ákvörðun þar sem ég er búinn að vera í Stjörnunni alla mína ævi og spennandi sumar framundan hjá Stjörnunni en ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir á mínum ferli,“ segir Halldór Orri á vef Stjörnunnar en hann hefur leikið 180 leiki fyrir uppeldisfélagið í efstu og næstefstu deild og skorað í þeim 65 mörk. „Við óskum Halldóri Orra góðs gengis í Svíþjóð. Hann hefur reynst okkur frábærlega undanfarin ár. Við vinnum nú að því að fá til okkar leikmann til að fylla í skarðið fyrir hann.“, segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar. Stjörnumenn geta þó leyft sér að brosa í gegnum tárin því liðið hefur samið aftur við danska miðvörðinn MartinRauschenberg sem spilaði með liðinu síðasta sumar. Hann verður aftur með Garðbæingum í Pepsi-deildinni á komandi leiktíð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira