Enski boltinn

Marriner fær leik um næstu helgi

Rautt á mig? Gibbs trúir ekki eigin augum um síðustu helgi.
Rautt á mig? Gibbs trúir ekki eigin augum um síðustu helgi. vísir/afp
Dómarinn Andre Marriner gerði sér lítið fyrir um síðustu helgi og rak vitlausan mann af velli í leik Chelsea og Arsenal.

Hann átti þá að reka Alex Oxlade-Chamberlain af velli er hann varði með hendinni. Hann ákvað aftur á móti að reka Kieran Gibbs af velli þó svo hann hefði ekkert með málið að gera.

Þrátt fyrir þessi ótrúlega mistök þá fær Marriner leik í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Það er búið að bóka hann á leik Southampton og Newcastle um næstu helgi en þessi ákvörðun enska knattspyrnusambandsins hefur vakið mikla athygli í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×