Sport

Pétur glímukóngur Íslands í níunda sinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ármenningurinn Pétur Eyþórsson bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu í glímu sem fór fram í 104. sinn í gær.

Þetta er í níunda sinn sem Pétur vinnur Grettisbeltið en hann hafði betur gegn Hjalta Þórarni Ásmundssyni eftir tvær úrslitaglímur.

Sólveig Rós Jóhannsdóttir, GFD, vann Freyjumenið í þriðja sinn eftir sigur á Evu Dögg Jóhannsdóttur, UÍA, í úrslitum. Sólveig vann síðast árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×