Tónlist

Grammy-tilnefndir bræður meðal þeirra sem troða upp á Secret Solstice

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Secret Solstice-hátíðin sem haldin verður í Laugardalnum í sumar bætir enn við tónlistaratriðum á þétta dagskrá sína, sem inniheldur stór nöfn á borð við Massive Attack, Woodkid, Carl Craig og Kerri Chandler. Hátíðin fer fram dagana 20.-22. júní og hér er hægt að sjá dagskrána í heild sinni.

Nú í dag bættust við tveir erlendir tónlistarmenn, Grammy-tilnefndu bræðurnir í sveitinni Disclosure og Jamie Jones, sem er heimsfrægur plötusnúður. Þá kemur hin íslenska hljómsveit Sing Fang til með að spila á hátíðinni.

Friðrik Ólafsson er einn skipuleggjandi hátíðarinnar á Íslandi.

Hvernig gengur að skipuleggja svo metnaðarfullt verkefni?

„Það gengur vel. Það er margt sem þarf að huga að, eins og gefur að skilja, en þetta er ótrúlega gaman.“

Þið hafið þegar kynnt til leiks risastór nöfn á hátíðina, er von á fleirum?

„Það er aldrei að vita. Við erum hinsvegar að verða mjög ánægð með það sem komið er og dagskráin er mjög vegleg fyrir verðið sem fólk borgar fyrir þriggja daga passa. Auk þess held að fólk hafi aldrei séð svona framleiðslu hérlendis. Við verðum með fimm svið og ætlum að skreyta svæðið til þess að bæta reynslu fólks og gera þetta sem eftirminnilegast. Við erum alveg að verða búin að fylla uppí dagskránna. En ætli að það séu ekki um það bil tíu til fimmtán atriði sem við erum að hugsa um að bæta við. “

Hvernig fáið þið nöfn á borð við Massive Attack til þess að koma til Íslands að spila á hátíð sem hefur aldrei verið haldin áður?

„Við erum svo heppin að einn meðeigandi hátíðinnar er einnig eigandi ‘Outlook’ og ‘Dimensions’ sem eru útihátíðir í Króatíu. Bara frá Bretlandi fljúga 25.000 manns til þess að fara á þær hátíðir. Þeir hafa verið okkur innan handar erlendis ásamt Warehouse project sem eru á meðal stærstu klúbba og tónleikahaldara í Bretlandi. Svo er Ísland svo vinsæll staður um þessar mundir og fólk vill koma hingað, bæði til þess að spila og sjá lifandi tónlist,“ segir Friðrik, léttur í bragði.

Eins og áður hefur komið fram er hátíðin haldin í júní, hvað gerið þið ef veðrið í Laugardalnum verður brjálað allan tímann?

„Það eru haldnar tónlistarhátíðir útum allan heim og ef það rignir þá er það ekki mikið tiltökumál. Smá rigning hefur ekki stöðvað neina útihátíð hingað til. Er ekki alltaf rigning í hinum dalnum?“ segir Friðrik og hlær.

„En svona til gamans þá létu við taka saman fyrir okkur hvernig veðrið hefur verið undanfarin ár yfir sólstöður og ef það verður eitthvað eins og síðustu átta ár þá ættum við að hafa sól í Dalnum þessa 72 klukkutíma sem að hátíðin stendur yfir.“


Tengdar fréttir

Vill bara rauð M&M

Plötusnúðurinn Carl Craig mun koma fram á tónlistahátíðinni Secret Solstice í sumar en hann er einn af fjölmörgum þekktum erlendum plötusnúðum sem koma fram á hátíðinni.

Woodkid kafar í Silfru

Woodkid, sem er væntanlegur til landsins á tónlistahátíðina Secret Solstice, er mikill Íslandsvinur og hefur komið hingað í heimsókn í tvígang.

„Gáfum aldrei út dánartilkynningu“

Hljómsveitin Maus hefur snúið aftur og ætlar að vera virk þetta árið. Sveitin er bókuð á þrjár tónleikahátíðir á árinu en er þó ekki viss um hvort ný plata sé væntanleg.

Ný tónlistarhátíð í Laugardalnum í sumar

Ný tónlistarhátíð verður haldin í Laugardalnum í júní. Breska hljómsveitin Massive Attack verður aðalatriðið á hátíðinni, en skipuleggjendur gera ráð fyrir að yfir þrjú þúsund erlendum tónleikagestum hingað til lands.

72 tímar af dagsbirtu

Metro birtir grein í dag um tilurð hátíðarinnar sem haldin verður í fyrsta sinn í Laugardalnum í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×