Sport

Hóparnir klárir fyrir EM í hópfimleikum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hópurinn sem varð Evrópumeistari 2012.
Hópurinn sem varð Evrópumeistari 2012. Vísir/Vilhelm
Landsliðshópurinn í hópfimleikum fyrir Evrópumótið sem fram fer hér á landi í október er klár en hann skipa tíu stúlkur úr Gerplu og sex úr Stjörnunni. Ísland hefur unnið tvö síðustu Evrópumót og getur unnið það þriðja í röð á heimavelli.  

Átta stúlkur úr hópnum voru í Evrópumeistaraliðinu 2012 og fjórar úr unglingaliðinu sem einnig varð Evrópumeistari fyrir tveimur árum.

Landsliðshóp kvenna skipa í stafrófsröð:

Andrea Sif Pétursdóttir - Stjarnan

Arna Sigurðardóttir - Stjarnan

Birta Sól Guðbrandsdóttir - Gerpla

Eva Grímsdóttir - Stjarnan

Fríða Rún Einarsdóttir - Gerpla

Glódís Guðgeirsdóttir - Gerpla

Hulda Magnúsdóttir - Stjarnan

Ingunn Jónasdóttir Hlíðberg - Gerpla

Karen Sif Viktorsdóttir - Gerpla

Rakel Nathalie Kristinsdóttir - Gerpla

Salvör Rafnsdóttir - Gerpla

Sara Margrét Jóhannesdóttir - Stjarnan

Sif Pálsdóttir - Gerpla

Sólveig Bergsdóttir - Gerpla

Valgerður Sigfinnsdóttir - Gerpla

Þórey Ásgeirsdóttir – Stjarnan

Ísland hefur einnig átt góðu gengi að fagni í keppni blandaðra liða undanfarið ár. Fimm lið voru skráð til keppni á Íslandsmótinu en þau hafa aldrei verið fleiri.

Blandað lið Selfoss tók sig til og vann bronsverðlaun á NM unglinga sem fram fór í Ásgarði í byrjun apríl og hefur keppnin verið mjög hörð í íslensku mótaröðinni 2014.

Íslensku strákarnir hafa verið að sækja í sig veðrið og hafa tekið gríðarlegum framförum frá því á síðasta Evrópumóti. Sterk staða íslenskra kvenna í keppni í hópfimleikum er gríðarlegur kostur þegar setja á saman sterkt blandað lið.

Landsliðshóp blandaðs liðs skipa í stafrófsröð:

Edda Sigríður Sigfinnsdóttir - Gerpla

Harpa Guðrún Hreinsdóttir - Stjarnan

Hugrún Hlín Gunnarsdóttir - Selfoss

Katrín Pétursdóttir - Gerpla

Marin Elvarsdóttir - Stjarnan

Rakel Másdóttir - Gerpla

Sigrún Dís Tryggvadóttir - Gerpla

Valdis Ellen Kristjánsdóttir - Stjarnan

Þórdís Ólafsdóttir - Stjarnan

Aron Bragason - Gerpla

Benedikt Rúnar Valgeirsson – Gerpla

Birkir Sigurjónsson - Ármann

Daði Snær Pálsson - Ármann

Guðjón Ólafsson - Gerpla

Magnús Óli Sigurðarsson - Gerpla

Sindri Steinn Davíðsson Diego - Ármann

Stefán Þór Friðriksson - Gerpla

Þorgeir Ívarsson – Gerpla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×