Lífið

"Mér fannst vera tími til kominn!“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Matgæðingurinn Martha Stewart er góð vinkona stórleikarans George Clooney. Hún er himinlifandi yfir að leikarinn hafi trúlofast breska lögfræðingnum Amal Alamuddin.

„Mér fannst vera tími til kominn! Þau eru æðislegt par,“ segir Martha. Hún gefur Amal einnig góð ráð í eldhúsinu.

„George borðar hollan mat. Hún gæti búið til máltíð sem er búin til í einum potti. Þau eru upptekin og geta útbúið holla máltíð á fljótlegan og einfaldan máta. Ég held að það væri máltíð sem hann myndi njóta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.